29.06.2016

Reglur Seðla­banka Ís­lands um bindiskyldu

Þann 4. júní sl. tóku gildi reglur Seðlabanka Íslands um bindiskyldu reiðufjár. Vinsamlegast kynnið ykkur vel reglurnar og hvaða aðilar eru bindingarskyldir í skilningi reglnanna. Meðal þess sem getur myndað bindiskyldu er ráðstöfun nýs innstreymis erlends gjaldeyris í innstæður í íslenskum krónum sem bera 3,00% ársvexti eða meira. Innstæður á innlendum gjaldeyrisreikningum sem urðu til fyrir 5. júní 2016 teljast ekki til nýs innstreymis erlends gjaldeyris. Þá nær bindiskyldan ekki heldur til tekna vegna útflutningsviðskipta eða annars skilaskylds erlends gjaldeyris.

Bindiskylda og tilkynningarskylda til Seðlabankans skal eiga sér stað innan tveggja vikna frá því að nýju innflæði erlends gjaldeyris er skipt í ISK.

Nánari upplýsingar má fá hjá Seðlabanka Íslandseða með því að hafa samband við arionbanki@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira