02.06.2017

Reynsla Arion banka af birt­ingu upplýsinga um sjálf­bærni

Á dögunum stóð Nasdaq kauphöllin á Íslandi fyrir morgunfundi á Hilton Reykjavik Nordica undir yfirskriftinni „Nýjar ESG leiðbeiningar Nasdaq Nordic - Fyrir heilbrigðara atvinnulíf og jörð“. Tilefni fundarins var að nýlega gáfu Nasdaq kauphallirnar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum út valfrjálsar leiðbeiningar um birtingu upplýsinga um umhverfismál, samfélagslega þætti og stjórnarhætti til stuðnings skráðum fyrirtækjum.

Sérstakur gestur á fundinum var Evan Harvey sem er stýrir alþjóðlegum verkefnum á sviði sjálfbærni hjá Nasdaq. Önnur erindi á fundinum fluttu Jón Ágúst Þorsteinsson, Gná Guðjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir, frá Klöppum og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka.

Í erindi sínu fjallaði Haraldur Guðni um reynslu Arion banka af birtingu upplýsinga um sjálfbærni. Síðla árs 2016 var samþykkt ný stefna bankans um samfélagsábyrgð og í ársskýrslu bankans fyrir sama ár var ítarlega fjallað um umhverfisáhrif af starfsemi bankans og aðra ófjárhagslega mælikvarða.

Nánari upplýsingar um áherslur og árangur Arion banka á sviði sjálfbærni má finna í sérstakri umhverfisskýrslu og í kafla um ófjárhagslega mælikvarða í ársskýrslu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira