02.05.2019

Ró-­Box frá Tækni­skól­anum var val­ið besta ís­lenska nem­enda­fyrir­tækið ár­ið 2019

Fyrirtækið Ró-Box, sem er í eigu nemenda við Tækniskólann, var valið fyrirtæki ársins 2019 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi.

Lokaumferð keppninnar fór fram í höfuðstöðvum Arion banka 30. apríl sl. og er bankinn jafnframt einn af aðalstyrktaraðilum Ungra frumkvöðla. Mun Ró-Box keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla, sem fram fer í Lille í Frakklandi dagana 3.-5. júlí 2019, á 100 ára afmæli JA á heimsvísu. Ró-Box selur einföld róbota-box fyrir krakka sem hjálpa börnum að læra á tækni og forritun og eru þau með íslenskum leiðbeiningum.

Til að gefa meirihluta íslenskra nemenda færi á að kynnast frumkvöðlastarfi af eigin raun í námi sínu stendur Junior Achievement á Íslandi árlega fyrir fyrirtækjasmiðju í framhaldsskólum landsins. Markmiðið er að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar. Árið 2019 tóku 560 nemendur í 13 framhaldsskólum þátt og er útlit fyrir að fjöldinn verði enn meiri á næstu árum.

Ungir frumkvöðlar efla íslenska nýsköpunarmenningu með átaki sínu í framhaldsskólum og bætast þar með við þau verkefni sem fyrir eru á öðrum skólastigum s.s. Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík á háskólastigi og Nýsköpunarkeppni grunnskólanna á grunnskólastigi. Öllu þessu starfi er ætlað að hvetja ungt fólk til þess að tileinka sér nýsköpun í starfi og námi og er stutt af Arion banka.

Í þetta sinn voru tuttugu fyrirtæki frá þrettán framhaldsskólum valin úr hópi 120 fyrirtækja til að taka þátt í úrslitum Ungra frumkvöðla 2019. Eftirfarandi fyrirtæki hlutu verðlaun:

  • Fyrirtæki ársins 2019: Ró-Box (Tækniskólinn)

  • Fyrirtæki ársins - 2. sæti: Blakkur (Borgarholtsskóli)

  • Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Karma (Menntaskólinn í Kópavogi)

  • Áhugaverðasta nýsköpunin: Fruss (Menntaskólinn við Hamrahlíð)

  • Besti Sjó-Bisnessinn: Haf hársprey (Verslunarskóli Íslands)

  • Fallegasti sölubásinn: Sylque (Verslunarskóli Íslands)

  • Besta matvælafyrirtækið: Gen-Yo (Kvennaskólinn í Reykjavík)

  • Bestu markaðsmálin: Hafmey (Menntaskólinn við Sund)

  • Umhverfisvænasta lausnin: Vei! (Fjölbrautaskólinn í Garðabæ)

  • Besta tæknilausnin: iRadar (Verslunarskóli Íslands)

  • Samfélagsleg nýsköpun: Tilfinningamolar (Borgarholtsskóli)

  • Besta fjármálalausnin: Ungdómur (Fjölbrautaskólinn við Ármúla)

  • Besta hönnunin: A Bag Project (Fjölbrautaskólinn í Garðabæ)

Um Unga frumkvöðla - Junior Achievement

Junior Achievement (JA) eru alþjóðleg félagasamtök sem starfa á heimsvísu en verkefni á vegum samtakanna snerta meira en tíu milljónir nemenda á ári hverju í 122 löndum, þar af yfir fjórar milljónir nemenda í 40 Evrópulöndum. Samtökin leitast við að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í skólum. JA á Íslandi er þátttakandi í JA á heimsvísu en samtökin verða 100 ára á árinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira