12.04.2021

Röskun á þjónustu Arion banka helg­ina 16. til 18. apríl vegna kerf­is­breyt­inga

Helgina 16. - 18. apríl mun Arion banki innleiða nýtt greiðslu- og innlánakerfi í samstarfi við Reiknistofu bankanna. Nýja kerfið, sem er frá alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækinu Sopra, leysir af hólmi eldri kerfi og mun auka hagræði og skapa ný tækifæri til vöruþróunar.

Kappkostað er að viðskiptavinir verði sem minnst varir við innleiðinguna en ekki verður hjá því komist að þjónustan raskist eitthvað. Föstudaginn 16. apríl verður þjónusta í útibúum bankans með hefðbundnum hætti en þann dag og um helgina geta viðskiptavinir átt von á skertri virkni í Arion appinu, netbankanum og hraðbönkum. Gera má ráð fyrir að þessar þjónustuleiðir verði alveg lokaðar í 2-4 klst. um hádegisbil sunnudaginn 18. apríl. Jafnframt verður gjafakortahraðbankinn í útibúi bankans í Kringlunni lokaður um helgina.

Við hvetjum viðskiptavini til að ljúka þeim bankaerindum sínum, sem ekki geta beðið fram yfir helgi, eins og frekast er unnt fyrir föstudaginn 16. apríl. Hefðbundin þjónusta kemst svo aftur á mánudaginn 19. apríl.

Nánar um þjónustu Arion banka helgina 16. - 18. apríl:

Debet- og kreditkort
  • Hægt verður að nota greiðslukort um helgina nema hvað skammvinn truflun getur orðið á notkun debetkorta sunnudaginn 18. apríl.

  • Ekki verður hægt að greiða inn á kreditkort.

  • Innborgun kemur ekki til hækkunar á ráðstöfunarupphæð fyrr en á sunnudagskvöld.

Arion appið, netbanki og hraðbankar
  • Verða óvirk í 2-4 klst. sunnudaginn 18. apríl

  • Staða reikninga og korta mun ekki uppfærast með réttum hætti fyrr en á sunnudagskvöld.

  • Ekki verður hægt að stofna reikninga.

  • Ekki verður hægt að stofna yfirdráttarheimild, breyta henni eða fella hana niður.

Millifærslur og greiðslur
  • Hægt verður að millifæra milli reikninga í netbanka og Arion appinu og úr netbönkum annarra banka og sparisjóða.

  • Upplýsingar um millifærslur og greiðslur til og frá Arion banka, sem framkvæmdar eru frá miðnætti aðfaranótt laugardags til sunnudagskvölds, verða ekki sýnilegar að fullu í kerfum Arion banka en verða sýnilegar í öðrum bönkum.

  • Upphæðir, sem millifærðar eru á reikninga í Arion banka yfir helgina, verður ekki hægt að millifæra áfram yfir á aðra reikninga fyrr en á sunnudagskvöld. Hins vegar er hægt að nýta þær með því að greiða með debetkortum og taka þær út í hraðbanka.

  • Upplýsingar um ógreidda reikninga uppfærast ekki, þ.e. ef reikningur er greiddur birtast þær upplýsingar ekki fyrr en á mánudag.

Frá og með sunnudagskvöldinu eiga allar upplýsingar að vera réttar í Arion appinu, netbanka og hraðbönkum. Gangi allt að óskum, verður innleiðing kerfisins um garð gengin á mánudag og öll þjónusta farin að virka með hefðbundnu sniði.

Við vonum að þessar breytingar valdi viðskiptavinum sem minnstum óþægindum. Allar nánari upplýsingar um innleiðingu Arion banka á nýju greiðslu- og innlánakerfi og mögulega röskun á þjónustu má finna á arionbanki.is/sopra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira