25.10.2018

Rún­ar Magni nýr framkvæmda­stjóri fyrir­tækja­sviðs Arion banka

Rúnar Magni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka. Rúnar Magni hefur starfað í fimmtán ár hjá bankanum og fyrirrennurum hans, lengst af á fyrirtækjasviði. Hann starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Kaupþingi á árinum 2000-2002 og hóf störf sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði árið 2005. Rúnar tók svo við stöðu forstöðumanns á fyrirtækjasviði árið 2014 sem hann hefur gengt þar til nú.

Rúnar Magni er með meistarapróf í alþjóða markaðmálum og stjórnun (IMM) frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann er jafnframt með próf í verðbréfaviðskiptum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira