18.01.2017
Samningur á milli ungmennafélagsins Hvatar og Arion banka endurnýjaður
Á dögunum undirrituðu Arion banki og Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi áframhaldandi samstarfssamning.
Með undirrituninni verður Arion banki því áfram einn af aðalbakhjörlum hins árlega knattspyrnumóts sem haldið er í bænum, Smábæjarleika Arion banka. Næsta sumar verður mótið haldið í fjórtánda sinn.