08.10.2021

Sam­starfs­samningur um upp­byggingu heilsu­byggð­ar

Garðabær og Arnarland ehf. hafa undirritað samstarfssamning um uppbyggingu heilsubyggðar á Arnarneshálsi. Þar verður lögð áhersla á lífsgæði, lýðheilsu, náttúru og heilsueflandi þjónustu. Verkefnið hefur hlotið nafnið Arnarland og er umrætt svæði u.þ.b. 10 ha að stærð. Það er staðsett á norðanverðum Arnarneshálsi og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi og Fífuhvammsvegi, við bæjarmörk Garðabæjar og Kópavogs.

Byggðin mun samanstanda af rúmgóðum hágæðaíbúðum sem bjóða upp á möguleika á hátæknivæðingu fyrir 50 ára og eldri ásamt miðstöð fyrirtækja sem sérhæfa sig í heilbrigðisþjónustu, þróun og nýsköpun í heilsueflandi starfsemi.

Framundan er skipulagsvinna á svæðinu sem felur í sér breytingar á aðalskipulagi sem og gerð deiliskipulags. Sú vinna verður unnin í nánu samstarfi við helstu hagsmunaaðila til að tryggja að ávinningur verði sem mestur fyrir tilvonandi íbúa, atvinnustarfsemi og nærumhverfi. Þá mun hönnun hverfisins taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og leitast verður við að skapa vandað bæjarumhverfi.

„Hugmyndafræði nýrrar heilsubyggðar í Arnarlandi er í takt við það markmið Garðabæjar að vera heilsueflandi samfélag. Með því að samtvinna vandaðar íbúðir og heilsueflandi starfsemi tekst okkur að mæta þörfum íbúa Garðabæjar sem og að styðja við þá nýsköpun sem getur átt sér stað í þessu umhverfi. Svæðið í kring býður upp á mikla möguleika og ég hlakka til að sjá líf færast á þennan fallega stað,” segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

Umrætt landsvæði hefur hingað til verið í eigu Landeyjar, dótturfélags Arion banka frá árinu 2016, en hefur nú verið fært í nýtt félag undir nafninu Arnarland ehf. Þorgerður Arna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Landeyjar, segir það afar ánægjulegt að þetta fallega landsvæði, sem er einstaklega vel staðsett við miðju höfuðborgarsvæðisins, fái það hlutverk að hýsa heilsubyggð í framtíðinni.

„Að okkar mati skortir vandaðar og rúmgóðar íbúðir fyrir fólk sem vill minnka við sig þegar ungarnir fljúga úr hreiðrinu. Í hverfinu verður lögð áhersla á að íbúar geti ræktað líkama og sál í fallegu og nærandi umhverfi og sótt alla nauðsynlega þjónustu innan hverfisins“, segir Þorgerður.

Félagið Ósar mun reisa framtíðarhöfuðstöðvar sínar á svæðinu og vera leiðandi í uppbyggingu á atvinnuhluta byggðarinnar. Ósar er móðurfélag fyrirtækjanna Icepharma og Parlogis sem bæði eiga yfir 100 ára sögu í markaðssetningu og dreifingu heilbrigðisvara á Íslandi.

„Við væntum þess að á svæðinu verði til klasi fyrirtækja sem sérhæfa sig í heilsueflandi starfsemi á borð við heilsugæslu, sérfræðiþjónustu, heilsurækt, veitingarekstur o.fl. Fyrirtækin og íbúðabyggðin munu njóta góðs af nærveru hvors annars ásamt því að auka heilsutengt þjónustuframboð til nærliggjandi hverfa“, segir Hálfdan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Parlogis, sem mun leiða uppbyggingu á atvinnuhluta landsins fyrir hönd Ósa.

Nánari upplýsingar um verkefnið má sjá á www.arnarland.is.

Meðfylgjandi eru myndir frá undirritun samstarfssamningsins sem fram fór fyrr í dag. Þar voru samankomnir fulltrúar verkefnisins.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
30. september 2026

Ný efna­hags­spá Ari­on: Langur vetur, hægar leysingar

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir hörðum og krefjandi vetri í íslensku hagkerfi . Ekki sér fyrir endann á stríðsrekstri í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi áhrifum á orkumarkaði og verðbólgu- og hagvaxtarhorfur, bæði hér heima og erlendis. Vonir um skjótar vaxtalækkanir hafa því orðið að engu og svartsýni aukist innan heimila og fyrirtækja. Þrautaganga þessi endurspeglast í lægri hagvaxtarspá en áður, hærri vöxtum og meiri verðbólgu.  

Lesa meira
21. september 2026

Það er gott að vera í viðskiptum hjá Arion

Á síðustu misserum höfum við hjá Arion lagt sífellt meiri áherslu á að umbuna viðskiptavinum okkar fyrir að nýta sér fjölbreytta þjónustu bankans og dótturfélaga hans, Varðar og Stefnis. Tvö verkefni standa þar sérstaklega upp úr: Arion fríðindi og Arion framtíð. 

Lesa meira
18. september 2026

10.000 konur mætt á viðburði Konur fjárfestum

„Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði.“ 

Lesa meira