22.10.2020

Seðla­bank­inn inn­leið­ir nýtt milli­banka­greiðslu­kerfi um helg­ina

Næstkomandi föstudagskvöld mun Seðlabanki Íslands hefja innleiðingu nýs millibankagreiðslukerfis sem kemur í stað stórgreiðslukerfis og jöfnunarkerfis bankans. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Reiknistofu bankanna, viðskiptabankana og sparisjóði landsins.

Í tilkynningu sem Seðlabankinn hefur birt kemur fram að stór hluti allra fjármálafærslna einstaklinga og fyrirtækja í landinu, t.d. með debetkortum og almennum millifærslum á milli reikninga, fari um kerfið sem þjónustar banka og fjármálastofnanir.

„Vonast er til að innleiðingin gangi snurðulaust fyrir sig en eins og oft á við um breytingar af þessu tagi geta komið upp hnökrar. Gerist það verður brugðist við eins fljótt og unnt er. Starfshópar á vegum Seðlabanka Íslands, Reiknistofu bankanna og væntanlegra notenda kerfisins verða í viðbragðsstöðu frá því áður en innleiðingin hefst á föstudagskvöldið og þar til henni lokið eftir næstu helgi,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Starfsfólk Arion banka sem tekur þátt í innleiðingunni verður í viðbragðsstöðu um helgina og komi upp hnökrar í innleiðingarferlinu verður brugðist við og viðskiptavinir upplýstir með viðeigandi hætti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira