04.01.2021

Síð­asti dag­ur yfir­töku­til­boðs til hlut­hafa Skelj­ungs

Yfirtökutilboð Strengs hf. til hluthafa Skeljungs hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á genginu 8,315 fyrir hvern hlut rennur út  í dag 4. janúar 2021 kl. 16:00.

Þann 6. desember 2020 lagði Strengur fram yfirtökutilboð í hlutafé í Skeljungi á grundvelli tilboðsskyldu samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Skilmálar og skilyrði tilboðsins eru sett fram í opinberu tilboðsyfirliti.
Strengur og tengdir aðilar fara með eignar- og atkvæðisrétt fyrir samtals 754.639.578 hlutum í Skeljungi eða sem samsvarar 38,00% af heildarhlutafé Skeljungs, eða 38,98% af útistandandi hlutum, þegar tekið hefur verið tillit til hlutabréfa í eigu Skeljungs.

Tilboðið nær til allra hluta í Skeljungi sem ekki voru í eigu Strengs eða Skeljungs samkvæmt hlutaskrá við lok viðskiptadags þann 4. desember 2020. Þeim hluthöfum hefur verðið sent tilboðsyfirlitið, samþykkiseyðublað og svarumslag.

Verð samkvæmt yfirtökutilboðinu er 8,315 krónur fyrir hvern hlut í Skeljungi, kvaða- og veðbandslausan. Tilboðsverðið svarar til hæsta verðs sem Strengur og samstarfsaðilar hafa greitt fyrir hluti í Skeljungi síðustu sex mánuði áður en tilboðsskylda myndaðist.

Gildistími yfirtökutilboðsins er fjórar vikur, frá kl. 09:00 þann 6. desember 2020 til kl. 16:00 þann 4. janúar 2021. Það er bæði hægt að skrá samþykki með því að svara bréfpósti sem sendur var til allra hluthafa og einnig á vef yfirtökutilboðsins (www.arionbanki.is/yfirtokutilbod-skeljungur) með rafrænum skilríkjum. Sé samþykki ekki skráð rafrænt þarf samþykkiseyðublaðið að hafa borist til skrifstofu Íslandsbanka (9. hæð), Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan gildistíma tilboðsins.

Skjöl

Yfirlýsing um samstarf og fyrirhugað yfirtökutilboð í hlutabréf, útgefin af Skeljungi hf.
Auglýsing um tilboðsyfirlit – Strengur hf.
Yfirtökutilboð – kynning
Tilboðsyfirlit
Spurningar og svör varðandi framtíðaráætlanir Strengs
Greinagerð stjórnar Skeljungs um tilboðið
Samþykktareyðublað yfirtökutilboðs í hluti Skeljungs hf.

Umsjónaraðilar yfirtökutilboðsins

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. og Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. eru umsjónaraðilar yfirtökutilboðsins fyrir hönd Strengs. Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum tölvupóstfangið skeljungur@arionbanki.is og í síma 444-7000 og í gegnum tölvupóstfangið skeljungur@islandsbanki.is og í síma 440-4000.

Fyrirvari

Vefsíða þessi er útbúin og veitt í upplýsingaskyni og felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu Strengs hf. eða umsjónaraðila. Tilboðshöfum er bent á að afla sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira