28.05.2019

Sjálf­virkni og gervi­greind í Startup Reykja­vík

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer fram í áttunda skipti í sumar en verkefnið hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga. Lögð er áhersla á að velja til þátttöku öflug teymi með nýjar lausnir ætlaðar alþjóðamarkaði.

Alls bárust um 200 umsóknir og vekur það athygli að fyrirtækin sem valin hafa verið eru lengra komin en oft áður, flest þeirra hafa nú þegar hafið starfsemi og eru byrjuð að afla tekna.

Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki fjármagnar verkefnið og fjárfestir í þeim fyrirtækjum sem taka þátt. Icelandic Startups hefur umsjón með verkefninu sem hefst þann 11. júní nk.

Þátttakendur Startup Reykjavík 2019

Baseparking
Bílastæðaþjónusta á Keflavíkurflugvelli sem hefur þjónustað yfir 20.000 viðskiptavini.

CheckMart
Skilvirkt innviða- og vistkerfi fyrir stafrænar verslanir.

Hvíslarinn
Hugbúnaðarlausn sem stuðlar að betri og öruggari þjónustu við sjúklinga með því að nýta snjalltækni, sjálfvirkni og gervigreind til að auka tímanýtingu og skilvirkni heilbrigðisstarfsfólks.

Íslensk Gervigreind
Stafrænn starfsmaður í skýinu sem einfaldar verkferla og þjónustu fyrirtækja.

Proency
Heilsutæknilausn fyrir fagfólk sem nýtir gervigreind til þess að auka skilvirkni sálfræðilegra aðferða og auðvelda innleiðingu heilsueflingu innan fyrirtækja.

Rafíþróttaskólinn
Félagslegur og stuðningsríkur vettvangur fyrir rafíþróttaspilara til þess að efla iðkendur félagslega og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í sínum rafíþróttaferli.

Rebutia
Gervigreindar hugbúnaður sem velur fatnað út frá ítarlegri greiningu á líkamsbyggingu notenda og hjálpar þeim að uppgötva fatastíl sem er sniðinn að þörfum hvers og eins.

SmartSampling
Hugbúnaður fyrir vörukynningarfyrirtæki sem býður upp á betri og skilvirkari leið til þess að fá upplýsingar frá viðskiptavinum um vörur.

Snorricam
Háþróað tól fyrir kvikmyndatöku sem fest er á líkamann og gerir kvikmyndagerðarfólki kleift að ná einstökum sjónarhornum.

TrackEHR
Hugbúnaðarlausn til að miðla upplýsingum um meðferðarplan og sjúkdómsgang á öruggan og skilvirkan hátt til inniliggjandi sjúklinga á sjúkrahúsum.

Fyrirtækin tíu njóta leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annara sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, undirbúa markaðssókn og hraða vexti. Í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavík Invest ehf. fjárfestir Arion banki í hverju fyrirtæki fyrir 2,4 milljónir króna gegn 6% eignarhlut.

Frá árinu 2012 hafa 68 fyrirtæki tekið þátt í Startup Reykjavík og er rúmlega helmingur þeirra enn starfandi. Alls hafa þau fengið um fjóra milljarða íslenskra króna í fjármögnun, þar af er um 65% hlutafé og 35% styrkir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira