10.02.2026

Sjáv­ar­út­veg­ur á Norður­slóð­um fær 15 millj­arða króna stuðning frá EIB í gegnum Arion banka

  • Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) lánar Arion banka um 15 milljarða króna, eða sem nemur 100 milljónum evra, til að styðja við sjálfbæran sjávarútveg, landeldi og aðrar sjávarútvegstengdar greinar á Norðurslóðum.

  • Arion banki mun nýta fjármögnunina í lán til smárra og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum.

  • Um er að ræða fyrsta samning EIB af þessari gerð á Norðurslóðum.

Samningur Arion banka og Evrópska fjárfestingarbankans (EIB) felur í sér 15 milljarða króna lán til Arion banka sem nýtt verður til fjármögnunar umhverfisvænna og sjálfbærra verkefna í sjávarútvegi á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Í krafti samningsins veitir Arion banki langtímalán til smárra og meðalstórra fyrirtækja sem starfa í sjávarútvegi og tengdum greinum; fyrirtækja sem stunda sjálfbærar fiskveiðar, vinnslu sjávarafurða og fisk- og þörungarækt.

Sjávarútvegur er einn hornsteina íslensks efnahagslífs og gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki á Norðurslóðum. Sífellt hertari kröfur eru gerðar til greinarinnar um fjárfestingar í nýrri tækni, umhverfisvænni starfshætti og aukinn styrk til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Samstarf EIB og Arion banka miðar að því að hjálpa fyrirtækjum að fullnægja þessum hertu kröfum með sjálfbærum hætti og skjóta þannig styrkari stoðum undir það sem stundum hefur verið nefnt „bláa hagkerfið“.

Samkvæmt samningnum, sem er sá fyrsti sinnar tegundar sem EIB gerir á Norðurslóðum, verður horft til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2026 til 2029. Samningurinn styrkir markmið Evrópusambandsins um að efla bláa hagkerfið með ábyrgri nýtingu auðlinda sjávar og tryggja þannig heilbrigð vistkerfi í hafinu.

„Fjármögnunin styður fyrirtæki sem byggja afkomu sína á hafinu á sama tíma og hún stuðlar að ábyrgri stjórnun sjávarauðlinda,“ segir Karl Nehammer, framkvæmdastjóri hjá EIB (e. Vice-President of the EIB). „Með samstarfinu við Arion banka styðjum við sjálfbærar fjárfestingar þar sem þær skipta mestu máli, hjá fyrirtækjum í nærsamfélaginu.“

Arion banki hefur um árabil lagt áherslu á þjónustu við sjávarútveg og nú í seinni tíð við fyrirtæki á Norðurslóðum. Með því að nýta krafta Arion banka nær EIB að auka aðgengi smærri fyrirtækja að langtímafjármögnun sem nýtast mun í sjálfbæran vöxt.

„Í áratugi hefur Arion verið traustur bakhjarl íslensks sjávarútvegs. Bankinn hefur fjármagnað íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og á síðari árum einnig fyrirtæki á Norðurslóðum. Að auki hefur Arion síðasta áratuginn verið leiðandi í fjármögnun fiskeldis á Íslandi og hjálpað til við að byggja upp blómlega atvinnugrein sem er orðin mikilvæg stoð í íslensku efnahagslífi,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. „Við sjáum mikil tækifæri í áframhaldandi uppbyggingu sjálfbærs sjávarútvegs á Íslandi og á Norðurslóðum og samningurinn við EIB styrkir okkur á þeirri vegferð.“

Aðeins verkefni sem tengjast fiskveiðum og fiskeldi og eru vottuð samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum eins og Marine Stewardship Council (MSC) eða Aquaculture Stewardship Council (ASC), sem almennt þykja fremstu alþjóðlegu viðmiðin um sjálfbærar sjávarafurðir, geta sóst eftir fjármögnun.

„Samningurinn markar viss tímamót þar sem um er að ræða fyrstu fjármögnun EIB sem beinist að sjálfbærum fiskveiðum, landeldi og öðrum sjávarnytjum smárra og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi. Samningurinn er því góð viðbót við nú þegar öflugt samstarf ESB og Íslands,“ segir Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. „Ég hlakka til að heyra frá fyrirtækjunum hvernig þessi fjármögnun styður sjálfbærniverkefni þeirra og þróun bláa hagkerfisins.“

Lánið er hluti af fjármögnun EIB sem ætluð er til sjálfbærra fjárfestinga í EFTA-löndunum. Samningurinn fellur að markmiðum EIB á sviði loftslagsmála, sjálfbærni og umhverfismála.

Um Evrópsku fjárfestingarbankasamstæðuna

EIB samstæðan er í eigu aðildarríkja sambandsins og er sú stofnun Evrópusambandsins sem sinnir langtímafjármögnun. Á árinu 2025 lánaði samstæðan um 100 milljarða evra í formi nýrrar fjármögnunar til yfir 870 verkefna á átta forgangssviðum sem öll styðja stefnumál ESB: Loftslagsmál og umhverfi, stafræna þróun og nýsköpun, öryggis- og varnarmál, samheldni, landbúnað og lífhagkerfi, félagslega innviði, fjármálamarkaði og sterkari Evrópu í friðsælum og farsælum heimi. Öll verkefni sem eru fjármögnuð af EIB eru í samræmi við Parísarsamkomulagið.

Myndir fyrir fjölmiðla af höfuðstöðvum EIB má nálgast hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
25. júní 2026

Arion framtíð

Launabónus fyrir ungt fólk, spennandi fríðindi og fjármálafræðsla á mannamáli.

Í apríl 2025 kynnti Arion samstæðan til sögunnar nýtt og öflugt fríðindakerfi, Arion fríðindi, sem miðar að því að hámarka þann ábata sem viðskiptavinir Arion og Varðar hafa af því að nýta sér hina margvíslegu þjónustu Arion samstæðunnar. Þeim mun meiri þjónustu sem viðskiptavinir Arion nýta sér – í bankaviðskiptum, tryggingum, sjóðum og svo framvegis – því meiri fríðindi og sérkjör fá þeir.

Lesa meira
23. júní 2026

Arion banki ráðgjafi í 6,7 milljarða króna hlutafjáraukningu hjá Laxey

Laxey hefur lokið 46,7 milljóna evra hlutafjáraukningu, sem nemur um 6,7 milljörðum króna, til fjármögnunar áframhaldandi uppbyggingar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. 

Lesa meira
16. júní 2026

Arion banki og Vörður semja við Knattspyrnudeild Keflavíkur

Arion banki og Vörður hafa undirritað samstarfssamning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Með samningnum vill Arion styðja við öflugt íþróttastarf á Suðurnesjum, en Arion banki og Vörður opnuðu nýlega nýtt útibú á Aðaltorgi í Reykjanesbæ þann 5. maí síðastliðinn.

Lesa meira