17.11.2023

Skert þjónusta um helg­ina

Við þurfum að sinna viðhaldi gagnagrunna aðfaranótt sunnudagsins 19. nóvember næstkomandi og verður því ákveðin grunnþjónusta óvirk á milli klukkan 2.00 til 9.00. Ekki er hægt að útiloka að einhverjar truflanir eigi sér jafnframt stað fram eftir degi.

Á þessum tíma verður því eftirfarandi þjónusta skert:

  • Aðgerðir í netbanka og appi

  • Aðrar aðgerðir en úttektir í hraðbönkum

  • Debetkort munu virka en debetkortareikningar munu ekki sýna rétta stöðu vegna færslna sem koma inn á þessum tíma

Kreditkort munu virka eðlilega.

Þjónusta á Keflavíkurflugvelli

Í útibúi okkar á Keflavíkurflugvelli verður ekki hægt að framkvæma eftirfarandi á umræddu tímabili:

  • Gjaldeyrisviðskipti með reiðufé hjá gjaldkerum

  • Almennar fjárhagslegar aðgerðir hjá gjaldkerum

Viðskiptavinir á Keflavíkurflugvelli munu hins vegar geta tekið út gjaldeyri hjá gjaldkerum okkar með korti ásamt því að nota gjaldeyrishraðbankana.

Tryggingar í appinu

Þá verða tryggingar óaðgengilegar í Arion appinu frá og með klukkan 14.00 á föstudaginn 17. nóvember og fram yfir helgi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira