18.02.2026

Skýrslur Arion banka fyrir ár­ið 2025

Arion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2025. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef bankans. Ársreikningur bankans fyrir árið 2025 var birtur 11. febrúar.

Auk umfjöllunar um þjónustu bankans, helstu verkefni og fjárhagsniðurstöður ársins inniheldur Árs- og sjálfbærniskýrsla Arion banka 2025 m.a. umfjöllun um mannauðsmál, umhverfis- og loftslagsmál, fjármagnaðan útblástur og sjálfbær fjármál. Þá inniheldur skýrslan umfangsmikið sjálfbærniuppgjör.

Áhættuskýrsla bankans fjallar um helstu áhættuþætti Arion banka á ítarlegan hátt og er þar að finna greinargóðar upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans. Auk þess er að finna upplýsingar um stjórnskipulag bankans með tilliti til áhættu sem og starfskjarastefnu. Skýrslan er gefin út ásamt upplýsingasniðmátum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) og ætti að lesast samhliða þeim.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira