19.01.2016

Stand­ard & Poor's breyt­ir horf­um á láns­hæfis­ein­kunn Arion banka úr stöð­ugum í já­kvæð­ar

Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's (S&P) hefur staðfest BBB-/A-3 lánshæfiseinkunn Arion banka og breytt horfum úr stöðugum í jákvæðar.

Breytingin á horfum er fyrst og fremst byggð á jákvæðum breytingum í íslensku efnahagslífi og telur S&P líklegt að sú jákvæða þróun haldi áfram í ljósi þess árangurs sem náðst hefur við undirbúning afnáms fjármagnshafta. Nýverið uppfærði S&P lánshæfiseinkunn Íslands í BBB+.

Að mati S&P þá felur staðfesting nauðasamninga föllnu bankanna í sér að verulega dregur úr áhættuþáttum í tengslum við afnám fjármagnshafta, betri rekstrarskilyrði skapast fyrir íslensk fjármálafyrirtæki og aðgangur þeirra að erlendum lánamörkuðum verður greiðari. S&P telur að eiginfjárstaða Arion banka muni halda áfram að styrkjast.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Allt frá því bankinn fékk fyrst lánshæfismat frá Standard & Poor´s þá hefur þróunin verið jákvæð enda hefur bæði staða íslensks efnahagslífs og bankans styrkst á þeim tíma. Staða Arion banka er í dag góð og eðli málsins samkvæmt þá er áframhaldandi þróun á lánshæfismati bankans ekki síst háð því að þróun í íslensku efnahagslífi verði áfram jákvæð, að vel takist til við afnám fjármagnshafta og að lánshæfismat íslenska ríkisins haldi áfram að hækka.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira