25.10.2017

Stand­ard & Poor's hækk­ar láns­hæf­is­mat Arion banka

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur hækkað langtíma lánshæfismat Arion banka úr BBB í BBB+ með stöðugum horfum. Skammtíma lánshæfismat bankans er áfram A-2.

Að mati Standard & Poor’s er staða Arion banka sterk og þá sérstaklega eiginfjárstaða bankans. Það er jafnframt litið jákvæðum augum að bankinn hefur haldið áfram að selja hluti í yfirteknum félögum. Standard & Poor’s metur stöðu íslensks efnahagslífs góða. Hagvöxtur hefur verið mikill og skuldastaða bæði fyrirtækja og einstaklinga haldið áfram að lækka.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Þetta er ánægjulegt og kemur ekki á óvart. Staða Arion banka er mjög góð, ekki síst þegar horft er til mikilvægra þátta eins og eiginfjárstöðu bankans. Jafnframt hefur Ísland notið hagvaxtar að undanförnu sem er umfram það sem almennt gerist í Evrópu. Hækkun lánshæfismats er því rökrétt skref og fyllilega í takt við þá jákvæðu þróun sem átt hefur sér stað hjá bankanum og hér á landi. Við finnum vel fyrir auknum áhuga erlendra fjárfesta, bæði á Arion banka og íslensku efnahagslífi, og mun hækkun lánshæfismats auka þann áhuga enn frekar.“

S&P lánshæfismat 25. október 2017

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira