24.06.2016

Starfs­fólk Arion banka tók til hendinni við sam­býli borgar­innar

Nýlega tók hópur starfsfólk Arion banka og fjölskyldur þeirra vel á því víðs vegar um borgina þegar Samfélagsdagur Arion banka og Skjaldar, starfsmannafélags, var haldinn. Tekið var til hendinni við að fegra umhverfið í kringum nokkur sambýli Reykjavíkurborgar.

Veðrið lék við mannskapinn og voru hendur látnar standa fram úr ermum þegar ráðist var í nauðsynleg garðverk. Vel var tekið á móti starfsfólki á sambýlunum og er óhætt að segja að mikil ánægja hafi verið með framtakið.

Verkefnið var unnið í góðri samvinnu við Reykjavíkurborg sem undanfarið hefur ekki náð að sinna umhverfi sambýla sem skyldi.

Meðfylgjandi má sjá myndir frá þessum skemmtilega degi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira