13.06.2017

Startup Reykja­vík hófst í gær

Startup Reykjavík hófst í sjötta sinn mánudaginn 12. júní en að vanda höfðu tíu fyrirtæki af ólíkum toga verið valin til þátttöku þetta árið.

Nú taka við 10 vikur af mikilli vinnu fyrir þátttakendur. Fyrirtækjateymin munu hitta fjölda ráðgjafa sem rýna rekstur fyrirtækjanna til gagns og sitja hagnýta fyrirlestra með það að markmiði að treysta rekstrarundirstöður fyrirtækjanna.

Í sumar verða haldnir nokkrir opnir viðburðir þar sem gestir geta hitt teymin og kynnst starfsemi þeirra eða hlýtt á stutta fyrirlestra sem tengjast fyrirtækjarekstri. Til að missa ekki af tilkynningum um þá viðburði hvetjum við áhugasama til að fylgja Startup Reykjavik á Facebook.

Startup Reykjavík er staðsett á 3. hæð í Borgartúni 20. Þar er alltaf heitt á könnunni fyrir þau sem vilja líta við og kynnast því sem þar fer fram.

Frá því að Startup Reykjavík var fyrst haldið árið 2012 hefur Arion banki fjárfest í 60 sprotafyrirtækjum í gegnum dótturfélag sitt, Startup Reykjavik Invest.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira