21.08.2019

Startup Reykja­vik In­vestor Day hald­inn í átt­unda sinn

Föstudaginn 16. ágúst sl. fór fjárfestadagur Startup Reykjavik fram í höfuðstöðvum Arion banka í áttunda sinn. Að vanda kynntu 10 fyrirtæki sem tekið hafa þátt í viðskiptahraðlinum í sumar sína viðskiptahugmynd. Rúmlega 150 fjárfestar og aðrir gestir hlýddu á kynningarnar.

Fyrirtækin tíu sem kynntu sig voru:

Fyrirtæki

Rekstur fyrirtækis

Vefsíða

Baseparking

Bílastæðaþjónusta á Keflavíkurflugvelli sem hefur þjónustað yfir 20.000 viðskiptavini.

www.baseparking.is

CheckMart

Skilvirkt innviða- og vistkerfi fyrir stafrænar verslanir.

www.karfa.is

Hvíslarinn

Hugbúnaðarlausn sem stuðlar að betri og öruggari þjónustu við sjúklinga með því að nýta snjalltækni, sjálfvirkni og gervigreind til að auka tímanýtingu og skilvirkni heilbrigðisstarfsfólks.

Íslensk gervigreind

Stafrænn starfsmaður í skýinu sem einfaldar verkferla og þjónustu fyrirtækja.

www.igg.is

Proency

Heilsutæknilausn fyrir fagfólk sem nýtir gervigreind til þess að auka skilvirkni sálfræðilegra aðferða og auðvelda innleiðingu heilsueflingu innan fyrirtækja.

www.proency.is

Rafíþróttaskólinn

Félagslegur og stuðningsríkur vettvangur fyrir rafíþróttaspilara til þess að efla iðkendur félagslega og hjálpa þeim að stíga sín fyrstu skref í sínum rafíþróttaferli.

www.rafithrottaskolinn.is

Rebutia

Gervigreindar hugbúnaður sem velur fatnað út frá ítarlegri greiningu á líkamsbyggingu notenda og hjálpar þeim að uppgötva fatastíl sem er sniðinn að þörfum hvers og eins.

www.rebutia.is

SmartSampling

Hugbúnaður fyrir vörukynningarfyrirtæki sem býður upp á betri og skilvirkari leið til þess að fá upplýsingar frá viðskiptavinum um vörur.

www.smartsampling.is

Snorricam

Háþróað tól fyrir kvikmyndatöku sem fest er á líkamann og gerir kvikmyndagerðarfólki kleift að ná einstökum sjónarhornum.

www.snorricam.is

TrackEHR

Hugbúnaðarlausn til að miðla upplýsingum um meðferðarplan og sjúkdómsgang á öruggan og skilvirkan hátt til inniliggjandi sjúklinga á sjúkrahúsum.

www.trackehr.is

Frá árinu 2012 hafa um 80 fyrirtæki verið valin til þátttöku í Startup Reykjavik. Á ári hverju berast að jafnaði 150-250 umsóknir um að komast í hraðalinn og er hlutfall samþykktra umsókna því á bilinu 4-7%. Hvert og eitt fyrirtæki fær 2,4 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% eignarhlut.

Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Startup Reykjavik á undanförnum árum eru fyrirtækin Florealis, Activity Stream, Authenteq, Jurt Hydroponics, Spor í sandinn og Myrkur.

Arion banki er eigandi Startup Reykjavik, sem er samstarfsverkefni bankans og Icelandic Startups.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira