23.08.2017

Startup Reykja­vik In­vestor Day hald­inn í sjötta sinn

Föstudaginn 18. ágúst var fjárfestadagur Startup Reykjavik haldinn í höfuðstöðvum bankans. Dagurinn markaði lok Startup Reykjavik 2017. Þar kynntu níu fyrirtæki viðskiptahugmyndir sínar fyrir fjárfestum og öðrum gestum.

Startup Reykjavik hefur fest sig í sessi sem öflugur vettvangur fyrir íslensk nýsköpunarfyrirtæki. Á því tíu vikna tímabili sem verkefnið er starfrækt fá fyrirtækin mikinn stuðning ólíkra reynslumikilla einstaklinga úr atvinnulífinu við að móta sínar viðskiptahugmyndir.

Startup Reykjavik er í eigu Arion banka og unnið í góðu samstarfi við Icelandic Startups.

Fyrirtækin sem kynntu á fjárfestadeginum eru:

Myshopover er vettvangur fyrir ferðamenn og gesti í borgum til að nýta sér persónulega aðstoð heimafólks við innkaup á fatnaði, nokkurs konar AirBnb fyrir þá sem vilja kaupa föt og þá sem aðstoða við þau kaup.

Porcelain Fortress hannar og gefur út tölvuleiki sem eiga það sameiginlegt að vera í stíl tölvuleikja á 9. áratugnum en með nútíma tækni.

Bone & Marrow er heilsu- og matvælafyrirtæki sem leitar í smiðju forfeðranna eftir æskilegri næringu fyrir nútímamanninn.

Safe Seat hannar sæti fyrir smærri báta til að koma í veg fyrir bak- og mænuskaða.

Maul leysir vandamál lítill og meðalstórra vinnustaða við hádegismat. Maul gerir vinnustöðunum kleift að panta mat frá veitingastöðum og fá matinn afhentan með tímasparnað og þægindi að leiðarljósi fyrir vinnustaðinn, starfsfólk og veitingahús.

Flow Education þjónar skólum, námsmönnum á aldrinum 5-11 ára og foreldrum þeirra upp á persónulega og og hvetjandi leið til að læra stærðfræði betur og hraðar.

Myrkur er tölvuleikjafyrirtæki sem hannar tölvuleiki með framleiðsluaðferð stórra þróunarfyrirtækja en viðheldur anda og stíl sjálfstæðs hönnnunarhúss.

DataPlato býður litlum og meðalstórum fyrirtækjum upp á sýndarfjármálaráðgjafa. Þjónustan byggir á greiningu bókhaldsgagna og forspárlíkönum um sjóðstreymi og fjárhagslega heilsu í rekstri.

Zifra hefur þróað dulkóðað minniskort og hugbúnaðarkerfi fyrir blaðamenn, ljósmyndara og aðra sem vinna með viðkvæmt efni og upplýsingar. Efni sem fer á minniskortið er dulkóðað um leið og það verður til.

Arion banki óskar fyrirtækjunum velfarnaðar í framtíðinni og hlakkar til frekara samstarfs.

Fleiri myndir frá deginum má sjá á Facebook síðu Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira