10.09.2018

Startup Reykja­vík val­inn besti viðskipta­hraðall­inn á Ís­landi

Á verðlaunaafhendingu Nordic Startup Awards sem fram fór í gær voru íslenskir frumkvöðlar verðlaunaðir. Sigurvegarnir munu keppa fyrir hönd Íslands á lokakvöldi Nordic Startup Awards sem fram fer í Kaupmannahöfn þann 30. október.

Meðal sigurvegara kvöldsins var viðskiptahraðall Arion banka, Startup Reykjavík, sem bankinn starfrækir í góðu samstarfi við Icelandic Startups. Startup Reykjavík hefur í fjögur skipti af fimm verið kosinn besti viðskiptahraðall á Íslandi og einu sinni besti viðskiptahraðall Norðurlanda.

Við óskum jafnframt öðrum sigurvegurum innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á lokakvöldinu í Kaupmannahöfn.

  • Ecosystem Hero of the year - Brandur Karlsson

  • Best FinTech Startup - Payday

  • Startup of the Year - Kara Connect

  • Best Corowking Space - Hús Sjávarklasans

  • Investor of the Year - Crowberry Capital

  • Best Bootstrapped Startup - Genki Instruments

  • Best AI/Machine Learning Startup - Activity Stream

  • Best FoodTech/AgriTech Startup - Jurt Hydroponics

  • Founder of the Year - Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

  • Best Newcomer - PayAnalytics

  • Best HealthTech Startup - Kara Connect

  • Best Social Impact Startup - PayAnalytics

  • Peoples' Choice Awards - Oliver Luckett

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira