01.10.2026

Stefnir 30 ára: Vöxt­ur, ný­sköp­un og aukið að­gengi að sparnaði fyrir alla

Stefnir hf., dótturfélag Arion banka hf., fagnar 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Þar starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins.  

Frá faxi til fjárfestinga í símanum 

Þegar Stefnir var að slíta barnsskónum, undir lok síðustu aldar, var internetið aðeins rétt að ryðja sér til rúms á íslenskum heimilum. Viðskiptafyrirmæli bárust oft með faxi, skýrslugjöf var að stórum hluta handunnin og verðbréf oft geymd í skúffum í formi pappírsskírteina, innan um bréfaklemmur og heftara.  

Þrjátíu árum síðar er veruleikinn heldur betur breyttur. Fjárfestar geta nú keypt í sjóðum á nokkrum sekúndum í símanum sínum, reglubundinn sparnaður er orðinn miklu aðgengilegri þökk sé stafrænni tækni og gervigreind er að endurmóta allt vinnulag fólks í fjármálaþjónustu.  

Þrátt fyrir örar tæknibreytingar, nýtt regluverk og síbreytilega markaði hafa áherslurnar hjá Stefni þó haldist óbreyttar alla tíð. Í fyrirrúmi er áherslan á traust milli starfsfólks og viðskiptavina félagsins, fagmennska og skýr framtíðarsýn við meðferð fjármuna viðskiptavina. Samfélagslegar áherslur félagsins endurspeglast enn fremur í því að árið 2012 varð Stefnir fyrst íslenskra félaga til að hljóta viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum og hefur haldið þeirri stöðu allar götur síðan. 

Kröftugur vöxtur síðustu ár 

Stefnir hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Eignir í stýringu félagsins jukust úr um 260 milljörðum króna í árslok 2022 í rúma 379 milljarða króna í árslok 2025 og nema nú yfir 390 milljörðum króna. Samhliða þeim vexti hefur viðskiptavinum fjölgað jafnt og þétt og eru þeir nú um 14.300 talsins og hafa ekki verið fleiri í sögu félagsins. 

Reglubundinn sparnaður hjá Stefni nýtur sífellt meiri vinsælda. Á síðasta ári fjölgaði þeim sem skráðu sig í reglubundna áskrift í sjóði um 40% og flest viðskipti fara nú fram í Arion appinu. Þar geta einstaklingar, forráðamenn barna og fyrirtæki fjárfest með einföldum hætti, hvar og hvenær sem er. 

Leiðandi í því að kynna breytingar í fjármálaþjónustu 

Stefnir hefur á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að gera fjárfestingar aðgengilegri. Gengismunur sjóða var felldur niður, lágmarksfjárhæð og afgreiðslugjöld við kaup og sölu afnumin ásamt því að þóknanir Premíu-sjóða voru lækkaðar. 

Markmiðið er að fleiri geti byggt upp reglubundinn sparnað og tekið þátt á verðbréfamarkaði, óháð fjárhæð eða fyrri reynslu. 

Átaksverkefni Arion samstæðunnar, Konur fjárfestum, hefur sömuleiðis stuðlað að aukinni þátttöku kvenna í fjárfestingum. Frá því verkefnið hófst hefur konum sem fjárfesta í sjóðum Stefnis fjölgað um 56%. 

Tólin breytt en markmiðið það sama 

Þrjátíu árum eftir stofnun er Stefnir á margan hátt breytt félag. Verkfærin eru önnur, tæknin öflugri og þjónustan aðgengilegri. Grunnurinn er þó enn sá sami: Faglegt og metnaðarfullt fólk vinnur af ábyrgð að því verkefni að skapa sem mest verðmæti fyrir viðskiptavini sína. 

Við hlökkum til næstu þrjátíu ára og horfum bjartsýn fram á veginn. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira