08.02.2016

Steingerður er nýr úti­bús­stjóri Arion banka í Hveragerði

Steingerður Hreinsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri hjá Arion banka í Hveragerði. Steingerður gegndi áður stöðu framkvæmdastjóra ferðaþjónustufyrirtækisins Arcanum Glacier tours, eða frá árinu 2014. Á árunum 2012-2014 starfaði Steingerður sem rekstrarstjóri hjá Kötlu Jarðvangi en á árunum 2005-2013 starfaði hún hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, fyrst sem verkefnastjóri og ráðgjafi og síðar sem framkvæmdastjóri.

Steingerður er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BSc gráðu í stjórnmálafræði og alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Southampton og meistaragráðu í alþjóða öryggis- og þróunarfræðum frá sama skóla. Eiginmaður hennar er Reynir Guðmundsson fjármálastjóri og saman eiga þau fimm uppkomin börn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira