30.01.2024

Stein­unn Hlíf hættir í framkvæmda­stjórn Arion banka

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Steinunn Hlíf hefur leitt mikilvægar breytingar þegar kemur að þjónustu bankans og upplifun viðskiptavina. Við höfum byggt sterkan grunn sem mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun þjónustu okkar og upplifun viðskiptavina. Ég þakka Steinunni einstaklega gott samstarf og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira