12.02.2021

Stórt skref í átt að raf­ræn­um þing­lýsingum

Undanfarna mánuði hefur átt sér stað þrotlaus vinna vegna innleiðingar rafrænna þinglýsinga í samstarfi við Sýslumannsembættin, Þjóðskrá og verkefnastofu um Stafrænt Ísland. Arion banki hefur í þessar vinnu byggt á þeirri miklu reynslu og þekkingu á stafrænum lausnum sem hefur byggst upp innan bankans á undanförnum árum. Það eru því gleðitíðindi þegar fyrsta skrefið var tekið í síðustu viku og rafræn aflýsing veðskjals fór fram. Var um að ræða aflýsingu fyrir viðskiptavin Arion banka.

Mikil eftirvænting hefur verið eftir rafrænum þinglýsingum frá því lög um rafrænar þinglýsingar voru samþykkt í árslok 2018. Rafrænar þinglýsingar munu bæta samvinnu banka og Sýslumannsembætta og gera þjónustu við viðskiptavini enn þægilegri og skjótari. En fyrir viðskiptavini okkar skiptir þetta ekki síst máli þegar kemur að veitingu íbúðalána þar sem þinglýsingar eru í dag sá hluti lánferlisins sem tekur hvað lengstan tíma. Verður um sannkallaða byltingu að ræða þegar rafrænar þinglýsingar og rafræn skuldabréf verða orðin að veruleika.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira