15.03.2016

Stuðningur við ný­sköp­un í fram­halds­skól­um

Arion banki er stoltur styrktaraðili Junior Achievement (Ungra frumkvöðla) sem stendur fyrir nýsköpunarátaki í stofnun og rekstri fyrirtækja fyrir framhaldsskólanema á Íslandi.

Á vorönn eru það átta íslenskir framhaldsskólar sem taka þátt og eru með áfanga sem um 300 nemendur sækja.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunarmála hjá Arion banka:

,,Reynslan í áfanga eins og þessum mun vonandi reynast krökkunum vel þegar þau koma út á vinnumarkaðinn síðar á lífsleiðinni með nýsköpun að leiðarljósi. Arion banki vildi leyfa krökkunum að komast enn betur í tæri við fjármálaumhverfið sem fylgir fyrirtækjarekstri og bauð því nemendum upp á aðgang að fyrirtækjanetbanka Arion banka. Með því er það von bankans að þau nái að kynna sér enn frekar þær daglegu fjárhagslegu aðgerðir sem eru mikilvægar öllum fyrirtækjarekstri.”

Á meðfylgjandi myndum má sjá nokkra nemendur og Einar Gunnar Guðmundsson frá Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira