18.11.2025

Styrk­ir í nafni framúrsk­ar­andi fyrir­tæki 2025

Í 16 ár hefur Creditinfo unnið að greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri en til þess að komast á þennan eftirsótta lista þarf að standast ströng skilyrði.

Við hjá Arion banka og Verði erum afar hreykin af því að vera í samstarfi við fjöldamörg framúrskarandi fyrirtæki. Við ákváðum því að fagna verðskuldaðri viðurkenningu þeirra með því að láta gott af okkur leiða.

Hvert og eitt framúrskarandi fyrirtæki, í viðskiptum við Arion banka og/eða Vörð, fékk val um að styrkja eitt eftirfarandi góðgerðarsamtaka í boði okkar: Barnaheill, Amnesty International eða Kraft. Öll hafa þessi samtök látið til sín taka í íslensku samfélagi og unnið þarft starf. Barnaheill vinna að mannréttindum barna, Amnesty International er alþjóðleg mannréttindahreyfing og Kraftur veitir ungu fólki, sem greinst hefur með krabbamein, stuðning.

Samtals hljóðaði styrkurinn upp á 2.988.000 kr.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira