29.02.2016

Styrk­ir til góðgerð­ar­félaga sem starfa í þágu barna

Nýlega átti starfsmannafélag Arion banka 80 ára afmæli og að því tilefni ákvað bankinn að leggja fram 25 þúsund krónur fyrir hvern starfsmann sem renna munu til góðgerðarmála sem tengjast velferð barna. Hver og einn starfsmaður fékk tækifæri til að velja félag.

Síðastliðinn föstudag var heldur betur ánægjulegt að fá í hús fulltrúa þeirra tíu góðgerðarsamtaka sem starfa í þágu barna og fengu hæstu styrkina í tilefni afmælisins. Alls fá 52 félög styrk að þessu tilefni.

Við vonum að þetta framtak eigi eftir að gleðja og að fjármunirnir muni nýtast til góðra verka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira