13.07.2016

Svika­póst­ar til net­banka­not­enda

Borið hefur á útsendingu tölvupósta þar sem viðtakendur eru beðnir um að smella á slóð sem vísar á falska vefsíðu sem er eftirlíking af forsíðu Netbanka Arion banka. Um er að ræða svikapóst.

Vefslóðin sem um ræðir vísar á svikasíðu sem hefur þann eina tilgang að nálgast notendaupplýsingar netbankanotenda. Arion banki ítrekar fyrir viðskiptavinum sínum að vera á varðbergi og fara einungis inn á síður sem nálgast má af heimasíðu bankans www.arionbanki.is.

Viðskiptavinir sem þegar hafa farið inn á þessa vefsíðu og hafa slegið inn auðkennisnúmer eru beðnir um að fara inn í netbankann og breyta umsvifalaust lykilorði. Jafnframt óskum við eftir því að viðkomandi láti okkur vita með því að hafa samband í síma 444-7000, milli 9:00 og 17:00 virka daga, eða í gegnum skilaboðasíðu okkar á Facebook.

Viðskiptavinir Arion banka eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að gefa upp notendaupplýsingar eða auðkennisnúmer í kjölfar tölvupóstsendinga enda sendir bankinn aldrei slíkar beiðnir í tölvupósti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira