02.12.2023

Tæp­lega fjór­föld eftir­spurn í hluta­fjárút­boði Ís­félags hf.

Almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. lauk kl. 14:00 þann 1. desember. Alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 ma.kr. sem samsvarar tæplega fjórfaldri eftirspurn. Rúmlega fimmföld eftirspurn var eftir þeim hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók A og rúmlega þreföld eftirspurn var eftir hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók B.

  • Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam alls 118.923.851 hlutum og heildarsöluandvirði útboðsins nam tæplega 18 milljörðum króna.

  • Í áskriftarbók A er útboðsgengi 135 kr. á hlut. Áskriftir upp að 500 þúsund krónum að kaupverði voru ekki skertar. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlutfallsleg.

  • Í áskriftarbók B er endanlegt útboðsgengi 155 kr. á hlut. Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu ekki úthlutun.

  • Seldir voru 39.667.919 eigin hlutir. Útistandandi hlutir Ísfélags í kjölfar útboðs nema 818.612.313 hlutum.

Seldir hlutir í áskriftarbók A nema 23.784.770 hlutum að söluandvirði um 3,2 milljarða króna. Við úthlutun voru áskriftir almennt skertar sem nemur um 97% en þó þannig að viðmiðum gagnvart áskriftum starfsmanna Ísfélags og almennum áskriftum var fylgt, líkt og stefnt var að samkvæmt skilmálum útboðsins. Seldir hlutir í áskriftarbók B nema 95.139.081 hlutum að söluandvirði um 14,8 milljarða króna. Áskriftir á útboðsgengi í áskriftarbók B voru skertar hlutfallslega sem nemur um 48%.

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun í útboðinu eigi síðar en 4. desember í tölvupósti. Gjalddagi áskriftarloforða er 6. desember næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram þann 8. desember.

Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. hefjist þann 8. desember næstkomandi, en Nasdaq Iceland hf. hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta með fyrirvara um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.

Arion banki hf., Íslandsbanki hf. og Landsbankinn hf. höfðu umsjón með almenna útboðinu og töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags:

„Við erum hæstánægð með mjög góðar viðtökur í útboði Ísfélagsins sem endurspegla trú fjárfesta á bæði félagið og sjávarútveginn. Við bjóðum fjölbreyttan hóp hluthafa velkominn. Staða Ísfélagsins er afar traust og skráning á Aðalmarkað Kauphallarinnar eflir það enn frekar. Skráningin styrkir áframhaldandi vöxt og getu félagsins til sóknar og til að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem það stendur frammi fyrir.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira