02.06.2016

Teym­in sem taka þátt í Startup Reykja­vík 2016

Startup Reykjavík viðskiptahraðallinn fer fram í fimmta skipti í sumar. Um 250 teymi sóttu um að taka þátt og hafa 10 teymi verið valin. Tilkynnt var hvaða teymi taka þátt í sumar á hinni árlegu ráðstefnu Startup Iceland sem haldin var í Hörpunni þann 30. maí. Það er Arion banki sem stendur að Startup Reykjavík í samstarfi við Icelandic Startups.

Teymin tíu eru eftirfarandi:

Platome

Framleiðir næringu fyrir stofnfrumur til að flýta fyrir þróun á stofnfrumumeðferðum.

Convex

Litríkur og fjölskylduvænn ævintýraleikur.

Strivo

Veitir þjálfurum/einkaþjálfurum tækifæri til að selja þjónustu sína á nýju og áhugaverðu sniði.

Lava Show

Mögnuð sýning þar sem alvöru bráðið hraun rennur inn í sýningarsal og yfir ís með tilheyrandi sjónarspili.

Hringborð

App sem er vettvangur fyrir stúdenta til að deila glósum og námsefni sín á milli.

Isold Film

Lána- og fjárfestingarsjóður fyrir kvikmynda og sjónvarpsgerð.

Drexler

Tónlistardrifinn fjölnotendahlutverkatölvuleikur.

FLOW

Býður upp á aðgengilegt efni tengt hugleiðslu og vellíðan.

TotalHost

Gerir Airbnb leigusölum kleift að fá greidda söluþóknun fyrir bókaðar ferðir innanlands.

Moon Chocolate

Framleiðir hágæða súkkulaði sem er búið til frá grunni.

Með þátttöku í Startup Reykjavík fá félögin aðstöðu í 10 vikur sem þau deila með hinum teymunum sem þátt taka. Einnig njóta þau leiðsagnar fjölda reyndra mentora sem deila sinni þekkingu og reynslu. Að auki þá fjárfestir Arion banki í félögunum sem taka þátt í Startup Reykjavík fyrir 2,4 milljónir króna gegn 6% eignarhlut.

Startup Reykjavík fór fyrst fram árið 2012 og hafa árlega 10 félög tekið þátt og þróað sínar viðskiptahugmyndir. Startup Reykjavík var valinn besti viðskipahraðall Norðurlanda árið 2015 og besti viðskiptahraðallinn á Íslandi árin 2015 og 2016. Alls hafa 40 félög farið í gegnum Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira