02.12.2022

The Ban­ker vel­ur Arion banka banka ársins 2022 á Ís­landi

Hið virta fjármálatímarit, The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2022.

Í rökstuðningi tímaritsins kemur fram að horft hafi verið til árangurs í rekstri og vaxtar bankans á síðustu árum. Einnig til áherslna bankans varðandi umhverfis- og félagsþætti sem og stjórnarhætti (UFS). The Banker tiltekur einnig nýjungar í þjónustu eins og Premíu þjónustu bankans þar sem þekking og reynsla á sviði eignastýringar og hefðbundinnar fjármálaþjónustu er nýtt til að styrkja þjónustu við umsvifamikla viðskiptavini.

Við valið á Arion banka var einnig höfð hliðsjón af umfangsmikilli starfsemi á sviði fyrirtækjaráðgjafar, en Arion banki kom að sex af átta skráningum í kauphallir á því tímabili sem The Banker horfir til. Einnig er tekið mið af tímamóta skuldabréfaútgáfu bankans en Arion banki var fyrsti íslenski bankinn til að gefa út sértryggð skuldabréf í evrum á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira