14.03.2019

Þrjú Startup Reykja­vík fyrir­tæki á lista yf­ir tíu áhuga­verð­ustu sprot­ana á Ís­landi

Vefsíðan EU-Startups er sjálfstæður miðill sem heldur úti greinaskrifum um það helsta sem er að gerast í sprotaumhverfinu í Evrópu. Í nýlegri grein er farið yfir það helsta sem er að gerast í sprotasenunni á Íslandi. Miðillinn nefnir m.a. tíu áhugaverð íslensk sprotafyrirtæki sem vert er að fylgjast með á árinu 2019. Skemmst frá að segja eru þrjú fyrirtæki á lista EU-Startups sem hafa farið í gegnum viðskiptahraðalinn Startup Reykjavík (SR).

Fyrirtækin þrjú eru:

Authenteq sem tók þátt í SR árið 2014

Authenteq er með starfsemi í Reykjavík og Berlín. Fyrirtækið sérhæfir sig í rafrænni auðkenningu án þess að nokkurt gagnastreymi milli einstaklinga og fyrirtækja / stofnana eigi sér stað. Löggild auðkenningarskjöl á borð við skilríki eru geymd í bálkakeðjum (e. blockchain) og tryggja þannig að notendur komist örugglega í viðskipti við fyrirtæki eða stofnanir á 60 sekúndum. Lausnin hentar þannig vel fyrir lönd þar sem miðlæg rafræn skilríki eru ekki til staðar, líkt og gengur og gerist á Norðurlöndunum.

Tim Draper tekur viðtal við Kára Rúnarsson, stofnanda Authenteq

Flow VR sem tók þátt í SR árið 2016

Flow VR býður upp á hugleiðslu í sýndarveruleika í íslenskri náttúru og með aðstoð íslenskra tónlistarmanna á borð við Sigurrós. Lausnin styður bæði við Samsung Gear VR og Oculus Go búnaðinn. Flow VR sækir einna helst inn á markað fyrirtækja sem vilja stuðla að betri heilsu og líðan starfsmanna sinna.

Tristan Gribbin útskýrir Flow VR

Genki Instruments sem tók þátt í SR árið 2016

Genki Instruments hefur þróað hringinn Wave, sem er MIDI (Musical Instrument Digital Interface) stjórntæki. Wave gerir notendum kleift að stýra og breyta hljóðum með hreyfingum handarinnar eingöngu. Wave gerir tónlistarmönnum t.d. kost á að stýra trommutakti á meðan leikið er á annað hljóðfæri. Handahreyfingar og einfaldir smellir á takka í hringnum bæta þannig flæðið í tónlistinni og upplifun þeirra sem hlusta.

30 sek. myndband sem útskýrir virkni Wave

Nánar má lesa um fyrirtækin tíu í upphaflegri frétt EU-startups.

Startup Reykjavík er í eigu Arion banka og er fyrsti viðskiptahraðallinn á Íslandi. Hraðallinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 í samstarfi við Icelandic Startups. Frá upphafi hefur Arion banki fjárfest í 68 sprotafyrirtækjum í gegnum Startup Reykjavik.

Umsóknarfrestur í Startup Reykjavík 2019 er til 27. mars næstkomandi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira