30.03.2020

Þró­un fjármála­markaða frá ára­mótum

Við aðstæður sem nú eru uppi vegna COVID-19 er vert að benda á mikilvægi áhættudreifingar sem er grundvöllur verðbréfasafna þar sem fjárfestingartími er langur. Í fjárfestingarleiðum Lífeyrisauka er meðal annars fjárfest í ólíkum eignum, eignaflokkum sem og eftir mismunandi landsvæðum að teknu tilliti til fjárfestingarstefnu, hér er þó undanskilin leið 5 sem fjárfestir eingöngu í innlánum. Á þann veg er reynt að draga úr sveiflum á eignasafni sjóðsins í heild.

Fjárfestingarleiðir sem standa sjóðfélögum Lífeyrisauka til boða eru alls sjö og fjölbreytnin því mikil. Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér framboðið og leggja mat á það hvort núverandi fjárfestingarleið henti markmiðum, aldri og áhættuvilja. Fjárfestingarstefnu og eignasamsetningu Lífeyrisauka er að finna á vefsíðu Arion banka.

Litið yfir farinn veg

Innlendur hlutabréfamarkaður hefur lækkað skarpt frá ársbyrjun og hefur úrvalsvísitala innlendra hlutabréfa lækkað um rúm 25%. Innlendur skuldabréfamarkaður hefur á sama tíma þróast með þeim hætti að ávöxtunarkrafa verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hefur lækkað töluvert frá áramótum. Ávöxtun innlendra ríkisskuldabréfa hefur þar af leiðandi verið góð það sem af er ári, óverðtryggð ríkisskuldabréf hafa skilað ávöxtun á bilinu 3,8% til 6,3% og ávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa hefur verið á bilinu 1,5% til 8,8%. Íslenska krónan hefur hins vegar gefið eftir á móti helstu viðskiptamyntum sínum og má nefna að krónan hefur veikst um tæp 12% á móti Evru og rúm 16% á móti Bandaríkjadal.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að slaka heldur á taumhaldi peningastefnunnar í ljósi versnandi efnahagshorfa og lækkað meginvexti bankans um 1 prósentustig eða niður í 1,75%. Fjármálastöðugleikanefnd bankans hefur enn fremur ákveðið að aflétta kröfu um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki með það að leiðarljósi að skapa svigrúm í bankakerfinu til að styðja við heimili og fyrirtæki með nýjum útlánum.

Erlendir verðbréfamarkaðir hafa einnig tekið skarpa dýfu. Til að mynda hefur heimsvísitala hlutabréfa lækkað um rúm 30% frá áramótum, mælt í Bandaríkjadölum. Flestir Seðlabankar heims hafa nú þegar gripið til ýmissa aðgerða til að styðja við efnahagslífið og bregðast við ört versnandi horfum vegna COVID-19 faraldursins, ýmist með vaxtalækkunum, kaupum á skuldabréfum í formi magnbundinnar íhlutunar (e. quantitative easing) og öðrum hvetjandi aðgerðum.

Ávöxtun fjárfestingaleiða Lífeyrisauka

Ávöxtun lífeyrissjóða er háð markaðsaðstæðum hverju sinni og til skemmri tíma litið má búast við sveiflum en þegar horft er til lengri tíma ættu sveiflurnar að jafnast að miklu leyti út. Hér má sjá ávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka til skemmri og lengri tíma.

Ávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka miðað við 23. mars 2020

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira