01.08.2026

Tilkynning til viðskipta­vina - færslur hafa ver­ið leið­rétt­ar

Vegna tæknilegs atviks tvöfölduðust færslur tímabundið hjá hluta viðskiptavina. Færslurnar hafa nú verið leiðréttar, en í kjölfarið kann að hafa myndast kostnaður, til dæmis vegna innistæðulausra færslna eða annarra gjalda sem rekja má til atviksins.

Við viljum fullvissa viðskiptavini um að þeir munu ekki bera neinn kostnað vegna þessa máls. Hafi gjöld þegar verið skuldfærð verða þau leiðrétt að fullu eftir helgina.

Við biðjumst innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið og þökkum viðskiptavinum fyrir sýndan skilning og þolinmæði á meðan unnið er að endanlegum frágangi málsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira