01.08.2025

Tíma­bundin lokun á Höfða vegna framkvæmda

Útibú Arion banka á Bíldshöfða 20 verður lokað dagana 6. - 28. ágúst vegna framkvæmda í rýminu. Eingöngu verður hægt að fara í úttektarhraðabanka meðan á framkvæmdunum stendur.

Útibúin okkar á Smáratorgi og í Borgartúni 19 verða með óbreyttan opnunartíma þessa daga og hið sama gildir um önnur útibú okkar um land allt.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Við hvetjum þig til að nota Arion appið og netbankann. Eins erum við líka alltaf til staðar í síma 444-7000 og svörum tölvupóstum á netfangið arionbanki@arionbanki.is.

Við hlökkum til að taka á móti þér í breyttu og betrumbættu útibúi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira