31.05.2017

Tíu teymi valin til þátt­töku í Startup Reykja­vík

Startup Reykjavík fram í sjötta sinn í sumar. Um 150 teymi sóttu um að taka þátt þetta árið og hafa tíu sprotafyrirtæki verið valin til þátttöku. Áður hafa fimmtíu fyrirtæki tekið þátt í viðskiptahraðlinum frá árinu 2012 sem hafa samtals fengið um 1,6 milljarða íslenskra króna í fjármögnun.

Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki er eigandi verkefnisins og fjárfestir jafnframt 2,4 milljónum króna í hverju fyrirtæki sem valið er til þátttöku.

Áhugafólk er hvatt til að fylgjast með framgangi sprotafyrirtækjanna og opnum viðburðum sumarsins á Facebook-síðu Startup Reykjavík.

Sprotafyrirtækin tíu sem hafa verið valin til þátttöku í sumar eru:

Bone & Marrow
Heilsu- og matvælafyrirtæki sem leitar í smiðju forfeðra eftir æskilegri næringu handa nútímamanninum.

Data Plato
Sýndar-fjármálastjóri sem veitir fyrirtækjum aðstoð við stjórnun fjármála með nýtingu gervigreindar.

Itogha
Greina ákveðna áhættuþætti sem tengjast lífstílssjúkdómum með einföldum prófum, þar á meðal hjarta- og æðasjúkdóma. Itogha býður einnig upp á matvæli sem þróuð hafa verið í samstarfi við vísindamenn og matreiðslufólk og eiga að draga verulega úr líkum á lífstílssjúkdómum.

Myrkur
Leikjafyrirtæki sem vinnur nú að hönnun og þróun á nýjum ævintýra hlutverkaleik.

My Shopover
Hugbúnaður sem gerir ferðamönnum kleift að tengjast heimamanni, eða verslunarráðgjafa og fá ráðleggingar varðandi verslun á svæðinu.

Maul
Hugbúnaður sem í krafti fjöldans gerir starfsmönnum ólíkra vinnustaða kleift að panta daglega hádegismat víðs vegar frá og sendir á staðinn.

Porcelain Fortress
Tölvuleikjastúdíó sem leggur áherslu á að gera skemmtilega, litla og vandaði leiki fyrir PC og leikjatölvur.

Flow Education
Heildstætt einstaklingsmiðað námskerfi sem byggt er á nútímatækni og leiðandi kenningum í sálfræði til að hraða fyrir námi barna.

Safe Seat
Fjaðrandi bátasæti sem verndar hryggsúluna í erfiðu sjólagi.

Zifra Tech
Þróa minniskort sem dulkóðar upptökur á rauntíma. Í upphafi er horft til fjölmiðlafólks sem þarf að vernda sig, sögur sínar og heimildarmenn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira