15.11.2017

Töf á milli­færslum til Lands­bankans um helg­ina

Eins og fram hefur komið í fréttum mun Landsbankinn, í samstarfi við Reiknistofu bankanna, innleiða nýtt grunnkerfi um komandi helgi. Gera má ráð fyrir að innleiðingunni ljúki mánudaginn 20. nóvember en undirbúningur hefst síðdegis föstudaginn 17. nóvember. Meðan á innleiðingunni stendur er búist við töf á millifærslum til Landsbankans.

Hefur þessi uppfærsla áhrif á viðskiptavini Arion banka?

  • Millifærslur sem gerðar verða um helgina af reikningum í Arion banka inn á reikninga í Landsbankanum munu ekki birtast viðtakanda samstundis heldur í síðasta lagi að innleiðingu lokinni, þ.e. á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun. Við minnum á að í netbankanum og Arion appinu getur greiðandi staðfest millifærslu, án kostnaðar, með því að senda kvittun í tölvupósti.

  • Millifærslur frá Landsbankanum inn á bankareikninga í Arion banka munu áfram birtast með hefðbundnum hætti á yfirlitum í Arion appinu og netbankanum. Færslurnar munu ekki birtast á yfirliti greiðanda fyrr en að innleiðingu lokinni.

Hvað ef ég lendi í vandræðum vegna þessa?

Ekki er búist við að þessi uppfærsla Landsbankans hafi frekari áhrif á viðskiptavini Arion banka. Til öryggis verða sérfræðingar í þjónustuveri okkar þó til taks á milli kl. 11 og 18 á laugardag og sunnudag. Ef þú lendir í vandræðum vegna þessa um helgina getur þú því haft samband við þjónustuverið með tölvupósti á arionbanki@arionbanki.is, skilaboðum í gegnum Facebook-síðuna okkar eða símtali í 444-7000.

Afgreiðslutími útibúa okkar í Kringlunni og á Keflavíkurflugvelli verður með hefðbundnum hætti um helgina. Við minnum einnig á að allar helstu afgreiðslur er hægt að framkvæma allan sólarhringinn í netbankanum, Arion appinu og hraðbönkum okkar um land allt.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira