16.08.2016

Tón­leikar með Sí­sý Ey og Milkiwhale streymt í beinni á Face­book síðu Arion banka

Hljómsveitirnar Sísý Ey og Milkywhale koma fram á fjórðu tónleikunum í tónleikaröðinni KEX+KÍTÓN í samstarfi við Arion banka sem haldnir verða á KEX Hostel 17. ágúst næstkomandi kl. 21.00.

Frítt er inn á tónleikana sem haldnir eru í bókahorni KEX Hostel en tónleikunum verður streymt beint á netinu í gegnum Facebook síðu Arion banka. Sjá nánari upplýsingar um viðburðinn hér.

Sísý Ey
Hljómsveitin Sísý Ey hefur verið starfandi frá árinu 2012 en hana skipa systurnar Sigríður, Elísabet og Elín Eyþórsdætur ásamt Friðfinni Sigurðssyni sem er einnig þekktur sem Oculus. Nú síðast gaf hljómsveitin út lagið "Do it good" hjá breska hljómplötufyrirtækinu Defected. Lagið hefur fengið mjög góðar viðtökur í Bretlandi og víðar.

Milkywhale
Milkywhale spratt fram á sjónarsviðið á Reykjavík Dance Festival sumarið 2015. Milkywhale er samstarfsverkefni FM Belfast meðlimsins Árna Rúnars Hlöðverssonar og Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur. Þau hafa vakið athygli fyrir sérlega líflega sviðsframkomu, dansvæna tónlist og góða nærveru og komu meðal annars fram á Hróarskelduhátíðinni fyrr í sumar.

KÍTÓN stendur fyrir konur í tónlist og er tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist. Þeim tilgangi er náð með auknum sýnileika, viðburðum og stöðugu samtali við tónlistarkonur á Íslandi. Samstarf KÍTÓN við KEX Hostel og Arion banka rennur enn fremur stoðum undir það góða starf sem KÍTÓN er að vinna.

Með samstarfi við Kex og KÍTÓN vill Arion banki styðja við íslenskar tónlistarkonur. Með tilstuðlan KÍTÓN er umræðan um stöðu kvenkyns laga- og textahöfunda jafnt sem flytjenda orðin fyrirferðameiri en hún hefur verið undanfarna áratugi. Félagið fer þvert á allar tónlistarstefnur, strauma, bakgrunn, menntun og jafnvel má sjá konur í félaginu sem starfa við tónlist sem umboðsmenn eða hafa atbeini eða starfa af tónlistargeiranum. Félagið fer ört stækkandi og eru nú um 246 félagskonur skráðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira