03.12.2020

Total Specific Soluti­ons kaup­ir dk hug­búnað

Hollenska fyrirtækið Total Specific Solutions (TSS) hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu dk hugbúnaði ehf. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferlinu.

TSS er hluti af Constellation Software Inc. sem skráð er í kanadísku kauphöllinni. dk hugbúnaður er rúmlega tuttugu ára gamalt fyrirtæki sem er leiðandi í sölu og þróun viðskiptahugbúnaðar hér á landi, með yfir 5.000 viðskiptavini og tæplega tveggja milljarða króna veltu á ári. Kaupverð í viðskiptunum er trúnaðarmál. Félagið verður áfram rekið sem sjálfstæð eining á Íslandi.

„Dk hugbúnaður er með góða fótfestu, öflugt teymi og sérlega gott orðspor á innlendum fyrirtækjamarkaði og hyggjumst við byggja á þeim góða grunni til framtíðar. Við hjá TSS bjóðum dk hugbúnað velkomin í samstæðuna,“ segir Gunnar Guðmundsson hjá TSS.

„Þegar við lítum um öxl á þessum tímamótum erum við, stofnendur dk hugbúnaðar, afskaplega stoltir af þeim árangri sem náðst hefur. Nú er að hefjast nýr og spennandi kafli í sögu félagsins og við hlökkum mikið til að vinna með TSS að áframhaldandi uppbyggingu og öfl ugri þjónustu við viðskiptavini okkar hér á landi,“ segir Dagbjartur Pálsson, forstjóri dk hugbúnaðar.

„Að loknu löngu og ítarlegu söluferli sem fjölmargir aðilar, innlendir sem erlendir, tóku þátt í, er ástæða til að óska TSS og dk hugbúnaði til hamingju með þessi viðskipti, sem eru ein stærstu fyrirtækjaviðskipti ársins hér á landi. Það er sérlega ánægjulegt að sjá erlenda fjárfestingu af þessari stærðargráðu inn í íslenskt atvinnulíf. Við höfum trú á því að dk hugbúnaður vaxi og dafni hér eftir sem hingað til með nýjum eigendum til hagsbóta fyrir hina fjölmörgu viðskiptavini félagsins,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira