24.04.2021

Tví­tekn­ar færslur á Visa kredit- og debet­kort

Hluti viðskiptavina hafa lent í því að einstaka færslur vegna viðskipta sem áttu sér stað síðastliðinn fimmtudag eru tvíteknar. Búið er að bakfæra þessar auka færslur á öllum kreditkortum en á debetkortum verða þær leiðréttar annað kvöld, 25. apríl.

Um er að ræða mistök sem áttu sér stað við innsendingu á færslum frá SaltPay (áður Borgun) til Visa International. Tæknileg mistök leiddu til þess að færslur á Visa-kort voru sendar tvisvar til Visa.

Ef þú hefur spurningar vegna þessa er hægt að hafa samband við okkur í gegnum netspjallið hér á síðunni sunnudaginn 25. apríl á milli klukkan 11 og 15. Einnig getur þú haft samband á mánudaginn með því að senda okkur póst á arionbanki@arionbanki.is, í gegnum netspjallið eða með því að hringja í þjónustuverið okkar í síma 444 7000. Þjónustuverið er opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 16:00.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira