26.09.2019

Um­fangs­mikl­ar breyt­ingar hjá Arion banka

Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Skipulagsbreytingarnar eru liður í vegferð bankans að settum markmiðum um 50% kostnaðarhlutfall og arðsemi eiginfjár umfram 10%. Sviðum bankans fækkar um tvö og ýmis verkefni færast til innan bankans með það að markmiði að einfalda starfsemina. Tekjusvið Arion banka verða þrjú: viðskiptabankasvið, fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið og markaðir. Stoðsvið verða einnig þrjú: fjármálasvið, upplýsingatæknisvið og áhættustýring.

Markmið breytinganna er að styrkja samkeppnishæfni bankans og auka arðsemi eiginfjár. Grunnstefna bankans er óbreytt og mun Arion banki áfram veita alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta og vera í fararbroddi um stafræna bankaþjónustu. Megin breytingin felst í að starfsemi fjárfestingabankasviðs færist á tvö ný svið, annars vegar markaði og hins vegar fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið. Markaðir munu hafa það hlutverk að skerpa áherslur bankans á sviði verðbréfastarfsemi en fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið mun veita fyrirtækjum og stofnunum heildstæða þjónustu varðandi fjármögnun og ráðgjöf. Bankinn mun efla þjónustu við þá sem leita að sem hagkvæmastri fjármögnun m.a. með milligöngu um fjármögnun frá þriðja aðila, svo sem sjóðum og öðrum stofnanafjárfestum.

Starfsfólki bankans mun við þessar breytingar fækka um 12% eða um eitt hundrað. Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þessu.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Sterk eiginfjár- og lausafjárstaða Arion banka felur í sér að bankinn stendur afar traustum fótum. Hins vegar er ljóst að rekstrarkostnaður er of hár og skipulag bankans tekur ekki nægjanlega vel mið af núverandi markaðsaðstæðum og þörfum atvinnulífsins. Umhverfi fjármálafyrirtækja hefur breyst mikið á undanförnum árum. Íþyngjandi breytingar á regluverki og sköttum á síðastliðnum áratug hafa leitt af sér mikinn viðbótarkostnað. Það er staðreynd að eiginfjárkröfur og skattar á banka hér á landi eru langt umfram það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur og skerða samkeppnisstöðu þeirra. Jafnframt er samkeppni á fjármálamarkaði að aukast til mikilla muna, t.a.m. frá lífeyrissjóðum, ríkisbönkum, fjártæknifyrirtækjum og minni fjármálafyrirtækjum sem lúta um margt öðrum lögmálum en kerfislega mikilvægir bankar. Vegna þessa hefur arðsemi bankans nú um nokkurt skeið ekki verið nægjanlega góð.

Með þeim skipulagsbreytingum sem við kynnum í dag erum við að bregðast við aðstæðum til að tryggja að bankinn þjóni sínum viðskiptavinum vel á sama tíma og hann skilar hluthöfum arði. Við byggjum á þeim mikla árangri sem hefur náðst á undanförnum árum á sviði stafrænnar þjónustu og sjálfvirknivæðingar og ætlum okkur áframhaldandi forystuhlutverk í framsækinni fjármálaþjónustu.

Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.“

Framkvæmdastjórn

Eftirfarandi skipa framkvæmdastjórn Arion banka: Benedikt Gíslason, bankastjóri, Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri markaða, Gísli S. Óttarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, og Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Staða framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs verður auglýst laus til umsóknar.

Úr framkvæmdastjórn stíga Lýður Þór Þorgeirsson og Rúnar Magni Jónsson en báðir taka við nýjum stöðum innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs. Lýður Þór mun taka við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og Rúnar Magni við starfi forstöðumanns á sviði fjármögnunar fyrirtækja. Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Arion banka og mun stýra lögfræðiráðgjöf á skrifstofu bankastjóra.

Fyrirtækja- og fjárfestingarbanki Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason
Lánveitingar til stærri fyrirtækja og ráðgjöf og þjónusta á sviði fjármögnunar og fyrirtækjakaupa/-sölu eða samruna. Þetta nýja svið sameinar þjónustu sem áður tilheyrði fyrirtækjasviði, fjárfestingarbankasviði, lögfræðisviði og lánaumsýslu.

Viðskiptabankasvið Iða Brá Benediktsdóttir
Alhliða fjármálaþjónusta við einstaklinga og lítil og meðalstór fyrirtæki sem veitt er í útibúum bankans um land allt, þjónustuveri, Netbanka og Arion banka appinu. Á viðskiptabankasviði er mikil áhersla lögð á stafrænar lausnir og þau tækifæri sem fylgja opinni bankastarfssemi. Fyrirtækjalausnir og markaðsmál bankans færast yfir á viðskiptabankasvið sem og hluti lögfræðisviðs.

Markaðir Margrét Sveinsdóttir
Markaðir munu sinna markaðsviðskiptum, eignastýringu fagfjárfesta, vörsluþjónustu, rekstri lífeyrissjóða og einkabankaþjónustu fyrir efnameiri einstaklinga, fyrirtæki, sjóði og stofnanir. Markaðsviðskipti tilheyrðu áður fjárfestingarbankasviði.

Fjármálasvið Stefán Pétursson
Sviðið hefur með höndum fjárstýringu, fjármögnun, reikningshald, launavinnslu, innkaupastýringu, hagdeild og fasteignir og rekstur. Við bætast viðskiptaumsjón og fullnustueignir.

Upplýsingatæknisvið Staðan verður auglýst
Skipulag er óbreytt en undir sviðið heyra hugbúnaðarþróun, tæknistjórnun og verkefnastofa.

Áhættustýring Gísli S. Óttarsson
Áhættustýring mun sem fyrr sinna útlánaeftirliti og mati á efnahagsáhættu og rekstraráhættu.

Skrifstofa bankastjóra Benedikt Gíslason
Verkefnum sem falla undir skrifstofu bankastjóra verður fækkað. Mannauður, samskiptasvið og viðskiptaþróun verða áfram hluti af skrifstofu bankastjóra. Lögfræðiráðgjöf og yfirlögfræðingur bankans bætast við skrifstofuna sem og yfirhagfræðingur bankans, en greiningardeild bankans verður lögð niður í núverandi mynd í takt við ákvæði MiFid II, en greinendur munu starfa með markaðsviðskiptum og öðrum deildum bankans. Markaðsmál munu nú heyra undir viðskiptabankasvið og lánaumsýsla færist yfir á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið. Staða umboðsmanns viðskiptavina verður lögð niður.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira