01.12.2016

Um­fram­eftir­spurn í út­boði á hluta­bréf­um í Skelj­ungi

31,5% hlutur í Skeljungi seldur á genginu 6,9 kr./hlut

  • Söluandvirði nemur 4,6 milljörðum króna

  • Um 2.500 fjárfestar tóku þátt í útboðinu

  • Heildareftirspurn yfir 12 milljarðar

  • Markaðsvirði Skeljungs um 14,5 milljarðar króna miðað við útboðsgengi

Vel heppnuðu almennu útboði á hlutabréfum í Skeljungi hf. lauk í gær, miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 16.00. Um 2.500 fjárfestar óskuðu eftir kaupum á hlutabréfum í Skeljungi fyrir samtals yfir 12 milljarða króna. Niðurstaða seljenda er að úthluta um 2.000 fjárfestum samtals 31,5% hlut á genginu 6,9 krónur á hlut. Söluandvirði útboðsins nemur því um 4,6 milljörðum króna og reiknast markaðsvirði alls hlutafjár í Skeljungi um 14,5 milljarðar króna miðað við niðurstöðu útboðsins.

Í ljósi mikillar eftirspurnar ákváðu Arion banki hf. og SÍA II slhf. að fullnýta heimild sína til að stækka útboðið. SF IV slhf. selur í útboðinu 23,5% hlut í Skeljungi hf., Arion banki 4% og SÍA II 4%.

Fyrir liggur að 11,75% hlutur verður seldur til fjárfesta í tilboðsbók A (þar sem mögulegt verðbil var 6,1-6,9 kr./hlut) og 19,75% hlutur seldur til fjárfesta í tilboðsbók B (þar sem lágmarksgengi var 6,1). Fjárfestar í tilboðsbók A fá úthlutað ríflega helming þess sem þeir óskuðu eftir að kaupa, nema áskriftir verða ekki skertar undir 500 þúsund krónur. Áskriftir sem bárust á verði yfir 6,9 krónur á hlut í tilboðsbók B verða óskertar en úthlutun til fjárfesta með áskriftir á útboðsgenginu nemur um fjórðungi af áskrift.

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Nasdaq Iceland hefur staðfest að hlutir í Skeljungi hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði miðvikudaginn 7. desember næstkomandi. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur umsjón með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöllina. Áætlað er að föstudaginn 9. desember næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Skeljungi á Aðalmarkaði.

Valgeir M. Baldursson, forstjóri Skeljungs:

„Það er afar ánægjulegt að sjá þessa góðu niðurstöðu í útboðinu. Hún tryggir leið Skeljungs aftur inn á hlutabréfamarkað eftir að hafa starfað sem óskráð félag í ríflega áratug. Þessi áfangi er mikilvægt skref fyrir fyrirtækið, starfsfólk, hluthafa og viðskiptavini. Við hjá Skeljungi hlökkum til að takast á við framtíðina í skráðu félagi og bjóðum nýja hluthafa hjartanlega velkomna í hópinn.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira