03.08.2016

Um­sókn­ar­frest­ur í Startup Energy Reykja­vík er til 14. ág­úst

Startup Energy Reykjavík (SER) er viðskiptahraðall þar sem ung fyrirtæki í orkutengum iðnaði og þjónustu fá víðtækan stuðning við frekari mótun sinna viðskiptahugmynda.

Startup Engergy Reykjavík fer fram á tímabilinu september-nóvember 2016 en bakhjarlar fjárfesta fyrir 5 milljónir króna í allt að 7 fyrirtækjum auk þess sem 50 manna hópur úr vísinda, viðskipta- og athafnalífinu leiðbeinir teymunum jafnt og þétt á meðan á SER stendur.

Skipulag SER er byggt á góðri reynslu frá Startup Reykjavík sem hefur verið haldið árin 2012-2016 en í gegnum það verkefni hefur Arion banki nú þegar fjárfest í 50 íslenskum sprotafyrirtækjum. Reynslan hefur sýnt að fyrirkomulagið hentar vel til þess að efla og undirbúa fyrirtæki sem eru að taka sín fyrstu skref í mótun og framkvæmd viðskiptahugmynda.

Hverjir eiga að sækja um?

Frumkvöðlar og og aðrir sem hafa upp á að bjóða vörur tengdum orkuiðnaðinum. Dæmi um starfsemi og vörur sem eiga gott erindi í Startup Energy Reykjavík er ýmis konar sérfræðiþjónusta, vélar, búnaður, viðhaldsþjónusta og hugbúnaður. Fyrirtæki á öllum stigum virðiskeðjunnar (framleiðsla, orkubreyting, dreifing, smásala) eiga erindi í SER.

Eftir hverju er leitað?

Varan eða þjónustan skal eiga erindi á alþjóðamarkað með skýran markhóp. Æskilegt er að verkefnið sé vel skalanlegt með tilliti til tekna. Eingöngu er horft á lausnir fyrir orkugeirann og tengdar eða afleiddar greinar.

Hvernig eru verkefnin valin?

Horft verður á hversu markaðsvæn varan eða þjónustan er og metið hvaða erindi hún á fyrir hinn skilgreinda markhóp. Samsetning teymisins á bak við hugmyndina er einnig mikilvæg, þ.e. að nægileg breidd sé í hópnum til þess að hugmyndin geti orðið að veruleika.

Bakhjarlar SER eru Arion banki, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og GEORG. Framkvæmd og utanumhald er í höndum Icelandic Startups og Iceland Geothermal.

Vefsíða Startup Energy Reykjavík

Skoðaðu kynningarmynd Startup Energy Reykjavík.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira