12.01.2016

Ung­ir frum­kvöðl­ar spreyta sig á stofn­un og rekstri fyrir­tækja

Um 300 ungir frumkvöðlar í framhaldsskólunum fá að spreyta sig á stofnun og rekstri fyrirtækja í nýsköpunarátaki sem félagið Ungir frumkvöðlar á Íslandi, Junior Achievement (JA), stendur fyrir í átta íslenskum framhaldsskólum.

Upphafsfundur átaksins verður haldinn í dag, 12. janúar kl. 17:00-18:00 í Háskólanum í Reykjavík. Þar flytja erindi meðal annars Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Hörður Guðmundsson sem er einn af stofnendum Study Cake sem er eitt af tíu sprotafyrirtækjum sem tóku þátt í Startup Reykjavík árið 2015. Arion banki er stoltur aðili að Junior Achievement á Íslandi og situr Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka í stjórn félagsins.

Þeir sem eru áhugasamir um nýsköpun eru hjartanlega velkomnir í Háskólann í Reykjavík í dag.

Á myndinni má sjá hluta af nýskipaðri stjórn Junior Achievement á Íslandi, ásamt Minnu Melleri framkvæmdastjóra JA, en stjórnina skipa: Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar (stjórnarformaður), Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins, Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Þór Sigfússon, forstjóri Sjávarklasans, Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra og Petra Bragadóttir, kennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira