19.05.2017

Ungt upp­finninga­fólk í Arion banka

Fimmtudaginn 18. maí mætti hópur hressra krakka í höfuðstöðvar Arion banka. Þar tóku þau þátt í vinnustofu Nýsköpunarkeppni grunnskólanna en Arion banki er einn af bakhjörlum keppninnar.

Í febrúar var auglýst eftir nýsköpunarhugmyndum frá nemendum í 5.-7. bekk og bárust yfir 1.100 hugmyndir. Dómnefnd valdi 25 hugmyndir sem komust að á vinnustofunni þar sem hið unga uppfinningafólk fékk fjármálafræðslu, aðstoð við gerð viðskiptalíkans og kennslu í að breyta hugmynd í veruleika.

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir í markaðsdeild Arion banka:

„Það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með öllum þessum litlu frumkvöðlum. Þau eru svo ótrúlega einlæg og skýr og auðvitað alveg uppfull af frábærum hugmyndum. Hugmyndirnar sem var unnið með á vinnustofunni voru af öllum stærðum og gerðum, til dæmis sögubangsi sem hægt er að tengja með bluetooth við síma, vatnshreinsunar- og matarsóunarkerfi, heimalærdómsapp og margt fleira.“

Á morgun, laugardaginn 20. maí, verður lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna haldið í Háskólanum í Reykjavík þar sem veitt verða ýmis verðlaun til þátttakenda ársins.

Á Facebook-síðu Arion banka má finna stutt myndbrot frá vinnustofunni en nánari upplýsingar um Nýsköpunarkeppni grunnskólanna má finna á vefsíðu keppninnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira