15.01.2018

Upplýsingar um viðskipta­vini upp­færð­ar

Starfsfólk Arion banka vinnur nú að því að uppfæra grunnupplýsingar, s.s. heimilisfang, netfang og símanúmer, viðskiptavina bankans. Þetta er gert í kjölfar nýlegra lagabreytinga þar sem gerðar eru auknar kröfur til fjármálafyrirtækja varðandi þekkingu þeirra á viðskiptavinum sínum. Uppfærslur sem þessar verða framvegis gerðar með reglubundnum hætti.

Leitast er við að gera þetta ferli sem þægilegast fyrir viðskiptavini bankans og geta viðskiptavinir sjálfir uppfært sínar upplýsingar í netbankanum eða Arion appinu. Viðskiptavinir geta einnig litið við í næsta útibúi bankans þar sem starfsfólk tekur við uppfærðum upplýsingum.

Markmiðið með áðurnefndum lagabreytingum er að verja bæði fjármálastofnanir og viðskiptavini þeirra fyrir peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka, auðkennisþjófnaði og annars konar sviksemi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira