02.02.2017

UT mess­an verður hald­in í Hörpu 3.-4. fe­brú­ar

Einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum, UT messan, verður haldin í Hörpu dagana 3. og 4. febrúar næstkomandi.

Tómas Ingason forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka verður með erindi á ráðstefnunni sem ber heitið ,,Creating the bank of tomorrow, 16 weeks at a time“. Í erindinu mun Tómast segja frá vegferð bankans við þróun stafrænna lausna og mótun banka framtíðarinnar.

Laugardaginn 4. febrúar er sýning á UT messunni sem er opin öllum og verður frítt inn. Gaman er fyrir fjölskyldur að kíkja á sýninguna en alls kyns fyrirtæki verða með kynningar, leiki og annað í boði. Arion banki verður með bás á svæðinu þar sem sýndar verða nýjustu stafrænu lausnir bankans sem viðskiptavinir geta nýtt sér hvar og hvenær sem þeim hentar.

Sjáumst á UT messunni á laugardaginn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira