05.10.2018

Úti­bú Arion banka í Garða­bæ opn­ar við Litla­tún á morg­un

Á morgun, 6. október kl. 10.00, opnar útibú Arion banka í Garðabæ í Hagkaupum við Litlatún. Í útibúinu verður lögð áhersla á góða þjónustu, aðstoð og kennslu í stafrænum þjónustuleiðum bankans.

Flest öll hefðbundin bankaþjónusta verður aðgengileg í nýja útibúinu. Sem dæmi er hægt að greiða reikninga, leggja inn og taka út íslenskar krónur í hraðbönkunum. Þá er hægt að millifæra og velja seðlastærðir. Með hjálp fjarfundarbúnaðar verður boðið upp á ítarlegri þjónustu og ráðgjöf.

Opnunartíminn í nýja útibúinu í Garðabæ er sveigjanlegri líkt og í útibúinu í Kringlunni og opið verður frá kl. 12.30-19.00 alla virka daga. Hraðbankar verða hins vegar opnir allan sólarhringinn.

Í tilefni opnunarinnar verður starfsfólk á staðnum frá kl. 10.00-19.00 á laugardag og frá kl.12.30-19.00 á sunnudag. Rjúkandi kaffi og kleinuhringir verða í boði og öll börn fá endurskinsmerki frá Sparilandi. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í nýja útibúið í Garðabæ.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira