07.09.2017

Úti­bú Arion banka í Kringl­unni lok­ar vegna breyt­inga

Útibú Arion banka í Kringlunni verður lokað dagana 9.-20. september. Lokunin er síðasti hnykkurinn í viðamiklum breytingum sem staðið hafa yfir síðustu vikur og mun bankinn opna endurnýjað útibú í Kringlunni fimmtudaginn 21. september. Breytingarnar snúa bæði að húsnæðinu og þjónustunni sem þar er veitt en markmiðið er að veita viðskiptavinum Arion banka þægilegri bankaþjónustu en áður.

Að breytingunum loknum verður útibúið opið alla daga vikunnar, á sama tíma og önnur verslun og þjónusta í Kringlunni en ekkert bankaútibú á landinu hefur svo rúman afgreiðslutíma. Í endurnýjuðu útibúi verða einnig ýmsar nýjungar og sem dæmi má nefna að þar verður hægt að ná sambandi við Þjónustuver Arion banka í gegnum fjarfundarbúnað.

Hraðbankar okkar við þjónustuborð á 1. hæð Kringlunnar verða eftir sem áður aðgengilegir dagana sem útibúið verður lokað. Þar er meðal annars hægt að taka út íslenskrar krónur, greiða greiðsluseðla, sjá stöðu bankareikninga og millifæra. Eins og aðra daga munum við taka vel á móti öllum í öðrum útibúum okkar á meðan útibúið í Kringlunni er lokað en minnum einnig á Arion appið og netbankann.

Svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna vegna breytinganna má finna á sérstakri síðu sem vísað er á hér fyrir neðan. Ef frekari spurningar vakna þá er lítið mál að senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða hringja í síma 444 7000.

Spurt og svarað vegna breytinga í Kringlunni

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira