30.04.2020

Úti­bú Arion banka opna aft­ur 12. maí

Útibú Arion banka munu opna aftur 12. maí en áfram verður nauðsynlegt að gæta að fjöldatakmörkunum og tveggja metra reglunni. Við biðjum því viðskiptavini um að takmarka komur í útibú eins og hægt er og bendum á kosti Arion appsins og netbankans þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir. Einnig er hægt að heyra í okkur í síma 444 7000, senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða hafa samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is.

Hraðbankar okkar eru sem fyrr aðgengilegir um land allt og bjóða upp á innlagnir, úttektir og margt fleira.

Fyrir fjármálaráðgjöf eða flóknari erindi hvetjum við viðskiptavini okkar áfram til að bóka tíma sérstaklega með því að hafa samband við okkur.

Opnunartímar útibúa frá og með 12. maí verða kynntir nánar í næstu viku.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira